Iðja er einn orðflokkur úr Orðaforðalista Menntamálastofnunar. Athugið að listann skal aðeins nota sem viðmið sjá nánar hér. Hér að neðan eru hugmyndir um hvernig vinna megi með orðflokkinn.
Orðaforði tengdur iðju
Smellið hér til að nálgast orðaforða sem er tengdur iðju sem gott er að hafi á valdi sínu fyrir 6 ára aldur. Athugið að námsefnið hér að neðan inniheldur ekki öll orðin af orðaforðalistanum. Listinn er einungis notaður sem innblástur til að finna efni við hæfi.
Í dagsins önn
Leggja orð á athafnir Taka eftir og spjalla um athafnir í bókum, sjónvarpi og umhverfi Hlusta á og dansa við Súpermanlagið 🙂 |
Námsefni sem gott er að grípa í
Iðja 3-6 ára. Á myndbandinu er ýtt undir að barnið læri hugtök tengd iðju í gegnum hreyfingu og leik. Barnið ýtir á play og stoppar svo myndbandið að handahófi. Leikið síðan athöfnina á myndinni sem kemur upp. Endurtakið síðan leikinn eins oft og þið viljið. Í myndbandinu eru 12 orð: heilsa, kveðja, hrósa, hræða, ropa, geispa, skíða, þrífa, flissa, heimsækja, toga og benda.
Til gagns þá er stutt fræðsla á síðu Miðju máls og læsis um þrjú mismunandi þrep orðaforða sem gott er að hafa í huga við málörvun barna til að bæta við flóknari orðum samhliða grunnorðaforða. Að sjálfsögðu þarf að taka tillit til aldurs, áhuga, viðfangsefni og þroska barnsins.
Vonandi eigið þið fræðandi og skemmtilega stund saman.