Hreyfing er einn orðflokkur úr Orðaforðalista Menntamálastofnunar. Athugið að listann skal aðeins nota sem viðmið sjá nánar hér. Hér að neðan eru hugmyndir um hvernig vinna megi með orðflokkinn.
Orðaforði tengdur hreyfingu
Smellið hér til að nálgast orðaforða sem er tengdur hreyfingu sem gott er að hafi á valdi sínu fyrir 3 ára aldur annars vegar og 6 ára aldur hins vegar. Athugið að námsefnið hér að neðan inniheldur ekki öll orðin af orðaforðalistanum. Listinn er einungis notaður sem innblástur til að finna efni við hæfi.
Námsefni sem gott er að grípa í
Hreyfing 2 – 6 ára. Bók með hugtökum sem tengjast hreyfingu fyrir börn á aldrinu 2 – 6 ára. Flettið í gegnum bókina með barninu, skoðið hugtökin og myndirnar sem þeim tengjast og hreyfið ykkur í takt (sjá dæmi hér að neðan). Hægt er að velja um að skoða bókina eða hlaða henni niður.

Til gagns þá er stutt fræðsla á síðu Miðju máls og læsis um þrjú mismunandi þrep orðaforða sem gott er að hafa í huga við málörvun barna til að bæta við flóknari orðum samhliða grunnorðaforða. Að sjálfsögðu þarf að taka tillit til aldurs, áhuga, viðfangsefni og þroska barnsins.
Vonandi eigið þið fræðandi og skemmtilega stund saman.