Leikföng

Leikföng er einn orðflokkur úr Orðaforðalista Menntamálastofnunar. Athugið að listann skal aðeins nota sem viðmið sjá nánar hér. Hér að neðan eru hugmyndir um hvernig vinna megi með orðflokkinn.

Orðaforði tengdur leikföngum

Smellið hér til að nálgast orðaforða sem er tengdur leikföngum sem gott er að hafi á valdi sínu fyrir 3 ára aldur annars vegar og 6 ára aldur hins vegar. Athugið að námsefnið hér að neðan inniheldur ekki öll orðin af orðaforðalistanum. Listinn er einungis notaður sem innblástur til að finna efni við hæfi.


Námsefni sem gott er að grípa í

Orðaleikur – leikföng. Skemmtilegar myndir af leikföngum og leiktækjum sem gaman er að fletta í gegnum með barninu. Hugmyndir að spurningum: Hvaða leikföng eru á myndinni? hvernig notum við þau? hvaða leikföng finnst þér skemmtilegt að leika þér með? Hvað er uppáhalds leikfangið þitt?

Leikföng – hugmyndir frá leikskólanum Iðavelli. Fjölbreyttar hugmyndir um hvernig megi vinna með orðaforða tengdum leikföngum. Hugmyndir að bókum, lögum, leikjum og fleiru.

Vonandi eigið þið fræðandi og skemmtilega stund saman.

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Change )

Connecting to %s

%d bloggers like this: