Líkaminn

Líkaminn er einn orðflokkur úr Orðaforðalista Menntamálastofnunar. Athugið að listann skal aðeins nota sem viðmið sjá nánar hér. Hér að neðan eru hugmyndir um hvernig vinna megi með orðflokkinn.


Orðaforði tengdur líkamanum

Smellið hér til að nálgast orðaforða sem er tengdur líkamanum sem gott er að hafi á valdi sínu fyrir 3 ára aldur annars vegar og 6 ára aldur hins vegar. Athugið að námsefnið hér að neðan inniheldur ekki öll orðin af orðaforðalistanum. Listinn er einungis notaður sem innblástur til að finna efni við hæfi.


Í dagsins önn

Syngja lög um líkamann. t.d. Hókí pókí, ég ætla að syngja, höfuð, herðar, hné og tær.

Bækur um líkamann. t.d. Dísa litla
.

Leikur um líkamann. t.d. Símon segir (Simon says)


Námsefni sem gott er að grípa í

Ég á – hver á? Líkamshlutar eru spjöld til útprenntunar af vefnum Fjölbreyttar kennsluaðferðir. Á hverju spjaldi fyrir sig er mynd af tveimur líkamshlutum. Barnið byrjar að segja ég á X (segjir hvað er á myndinni sem er ofar á spjaldinu) og spyr svo hver á Y (segir hvað er á myndinni sem er neðar á spjaldinu). Dæmi. Ég á tá, hver á hæl. Ég á hæl, hver á auga og svo koll af kolli.

Orðaleikur – líkaminn eru myndir sem eru hluti af kennsluefninu Orðaleikur. Hægt er að skoða myndinarnar og spjalla um þær og einnig búa til alls konar verkefni úr þeim. Hér að neðan má sjá hvernig myndinar eru notaðar í myndband.

Líkaminn – myndband. Barnið ýtir á play og stoppar svo myndbandið af handahófi. Nefnir líkamshlutann sem kemur upp og bendir hvar hann er að finna á sjálfu sér. Myndirnar í myndbandinu eru fengnar að láni úr kennsluefninu orðaleikur.

Líkaminn – hugmyndir frá Iðavelli. Skjal með hugmyndum um hvernig megi vinna með orðaforða tengdum líkamanum.

Vonandi eigið þið fræðandi og skemmtilega stund saman.

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Change )

Connecting to %s

%d bloggers like this: