Samfélag

Samfélag er einn orðflokkur úr Orðaforðalista Menntamálastofnunar. Athugið að listann skal aðeins nota sem viðmið sjá nánar hér. Hér að neðan eru hugmyndir um hvernig vinna megi með orðflokkinn.

Orðaforði tengdur samfélagi

Smellið hér til að nálgast orðaforða sem er tengdur samfélagi sem gott er að hafi á valdi sínu fyrir 3 ára aldur. Athugið að námsefnið hér að neðan inniheldur ekki öll orðin af orðaforðalistanum. Listinn er einungis notaður sem innblástur til að finna efni við hæfi.

Í dagsins önn

Spjallið um þjónustustofnanir sem verða á vegi ykkar í göngu- og bílferðum.

Spjallið um hugtök tengd samfélaginu sem koma fyrir í bókum, sögum og sjónvarpsefni.

Námsefni sem gott er að grípa í

Samfélag – flettibók er bók sem inniheldur ýmis hugtök úr samfélaginu okkar. Flettið í gegnum bókina með barninu og spjallið um hugtökin og tengið við ykkar nánasta umhverfi. Hægt er að skoða skjalið í gegnum vafra eða hlaða því niður.

Samfélag – vettvangsferð er skjal með myndum af mismunandi þjónustu í samfélaginu okkar. Myndirnar eru þær sömu og í flettibókinni hér að ofan. Prentið blaðið út, takið það með í vettvangsferð og setjið x við þá þjónustu sem verður á vegi ykkar. Hægt er að skoða skjalið í gegnum vafra eða hlaða því niður.

Vonandi eigið þið fræðandi og skemmtilega stund saman.

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Change )

Connecting to %s

%d bloggers like this: