Veðurfar er einn orðflokkur úr Orðaforðalista Menntamálastofnunar. Athugið að listann skal aðeins nota sem viðmið sjá nánar hér. Hér að neðan eru hugmyndir um hvernig vinna megi með orðflokkinn.
Orðaforði tengdur veðurfari
Smellið hér til að nálgast orðaforða sem er tengdur veðurfari sem gott er að hafi á valdi sínu fyrir 6 ára aldur. Athugið að námsefnið hér að neðan inniheldur ekki öll orðin af orðaforðalistanum. Listinn er einungis notaður sem innblástur til að finna efni við hæfi.
Í dagsins önn
Spjalla um veðurfarið hverju sinni, hvaða áhrif það hefur og hvernig gott er að klæða sig Spjalla um veðurfar í bókum, sögum og sjónvarpsefni. Sérstaklega þegar það hefur mikil áhrif á atburðarrás |
Námsefni sem gott er að grípa í

Veðrið 3-6 ára er skjal með ýmsum hugtökum tengdum veðrinu. Hægt er að fletta í gegnum skjalið og skoða öll hugtökin í röð. Einnig má smella á það veðurfar á forsíðunni sem barninu langar að skoða betur hverju sinni, fara þar á eftir aftur til baka á byrjunarsíðuna og endurtaka svo leikinn. Þannig hefur barnið meiri stjórn sem getur vakið meiri áhuga barnsins á efninu. Athugið að við skilgreiningar á hugtökunum var stuðst við Íslensku nútímamálsorðabókina til viðmiðunar en að sjálfsögðu má einfalda skilgreiningar eftir þörfum og nota sitt eigið orðaval til að útskýra hugtökin.
Til gagns þá er stutt fræðsla á síðu Miðju máls og læsis um þrjú mismunandi þrep orðaforða sem gott er að hafa í huga við málörvun barna til að bæta við flóknari orðum samhliða grunnorðaforða. Að sjálfsögðu þarf að taka tillit til aldurs, áhuga, viðfangsefni og þroska barnsins.
Vonandi eigið þið fræðandi og skemmtilega stund saman.