Persónur er einn orðflokkur úr Orðaforðalista Menntamálastofnunar. Athugið að listann skal aðeins nota sem viðmið sjá nánar hér. Hér að neðan eru hugmyndir um hvernig vinna megi með orðflokkinn.
Orðaforði tengdur persónum
Smellið hér til að nálgast orðaforða sem er tengdur persónum sem gott er að hafi á valdi sínu fyrir 6 ára aldur. Athugið að námsefnið hér að neðan inniheldur ekki öll orðin af orðaforðalistanum. Listinn er einungis notaður sem innblástur til að finna efni við hæfi.
Í dagsins önn
Skoða saman myndir af fjölskyldumeðlimum og frændfólki og spjalla um hvernig þeir tengjast barninu. Spjalla um persónur í bókum, sjónvarpi og umhverfi. Til dæmis fjölskyldutengsl, hlutverk og starfsheiti. |
Námsefni sem gott er að grípa í
Orðaleikur – starfsheiti/ævintýrapersónur er myndasafn út frá þróunarverkefninu Orðaleikur. Skemmtileg uppspretta umræðna um persónur og hlutverk þeirra. Hægt er að smella á eina mynd, fletta í gegn og ræða í leiðinni um hvað einkennir hverja persónu fyrir sig. Gaman er að sjá hvort og hvernig pælingar koma frá barninu út frá myndunum og ræða þær.

Stafsheiti – gátur. Léttar gátur með myndum og starfslýsingu 8 mismunandi starfa. Lesið gátuna upp fyrir barnið og veltið því fyrir ykkur saman hvaða starfi sé verið að lýsa. Á næstu blaðsíðu má finna svarið.
Til gagns þá er stutt fræðsla á síðu Miðju máls og læsis um þrjú mismunandi þrep orðaforða sem gott er að hafa í huga við málörvun barna til að bæta við flóknari orðum samhliða grunnorðaforða. Að sjálfsögðu þarf að taka tillit til aldurs, áhuga, viðfangsefni og þroska barnsins.
Vonandi eigið þið fræðandi og skemmtilega stund saman.