Andstæður

Andstæður er einn orðflokkur úr Orðaforðalista Menntamálastofnunar. Athugið að listann skal aðeins nota sem viðmið sjá nánar hér. Hér að neðan eru hugmyndir um hvernig vinna megi með orðflokkinn.

Orðaforði tengdur andstæðum (3 – 6 ára)

Smellið hér til að nálgast orðaforða sem er tengdur andstæðum sem gott er að hafi á valdi sínu fyrir 6 ára aldur. Athugið að námsefnið hér að neðan inniheldur ekki öll orðin af orðaforðalistanum. Listinn er einungis notaður sem innblástur til að finna efni við hæfi.

Í dagsins önn


Spjalla um andstæður sem þið sjáið í bókum, sjónvarpinu, í umhverfinu.

Dæmi um bækur með andstæðum: Grísirnir þrír, Gullbrá og birnirnir þrír

Námsefni sem gott er að grípa í

Myndabók með andstæðum. Unnið er með hugtökin: ljóst/dökkt, hreint/óhreint, yngstur/elstur, eldri/yngri, ánægður/óánægður. Gott að tengja efni bókarinnar við umhverfið. Hvað á heimilinu er ljóst/dökkt, hver í fjölskyldunni er elstur/yngstur, hvenær ertu ánægður/óánægður, finnið eina þykka bók og eina þunna bók o.s.frv.

Til gagns þá er stutt fræðsla á síðu Miðju máls og læsis um þrjú mismunandi þrep orðaforða sem gott er að hafa í huga við málörvun barna til að bæta við flóknari orðum samhliða grunnorðaforða. Að sjálfsögðu þarf að taka tillit til aldurs, áhuga, viðfangsefni og þroska barnsins.

Vonandi eigið þið fræðandi og skemmtilega stund saman.

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Change )

Connecting to %s

%d bloggers like this: