Andstæður er einn orðflokkur úr Orðaforðalista Menntamálastofnunar. Athugið að listann skal aðeins nota sem viðmið sjá nánar hér. Hér að neðan eru hugmyndir um hvernig vinna megi með orðflokkinn.
Orðaforði tengdur andstæðum (< 3 ára)
Smellið hér til að nálgast orðaforða sem er tengdur andstæðum sem gott er að hafi á valdi sínu fyrir 3 ára aldur. Athugið að námsefnið hér að neðan inniheldur ekki öll orðin af orðaforðalistanum. Listinn er einungis notaður sem innblástur til að finna efni við hæfi.
Í dagsins önn
Spjalla um andstæður sem þið sjáið í bókum, sjónvarpinu og í umhverfinu. Dæmi um bækur með andstæðum: Grísirnir þrír, Gullbrá og birnirnir þrír |
Námsefni sem gott er að grípa í
Myndabók með andstæðum. Unnið er með hugtökin: stór/lítill, glaður/leiður, upp/niður, heitur/kaldur, léttur/þungur, fullur/tómur og ungur/gamall. Gott að tengja efni bókarinnar við umhverfið. Hvað á heimilinu er stórt/lítið, létt/þungt, heitt/kalt o.s.frv.
Andstæður – verkefnasafn. Skemmtilegar myndir fyrir börn af andstæðum. Af síðunni Þarf alltaf að finna upp hjólið? Verkefnasafn. sem er hluti af lokaverkefni Guðlaugar Margrétar Dagbjartsdóttur og Salóme Huldar Gunnarsdóttur til BA gráðu í Þroskaþjálfafræði.
Vonandi eigið þið fræðandi og skemmtilega stund saman.