Form og mynstur


Form og mynstur
 er einn orðflokkur úr Orðaforðalista Menntamálastofnunar. Athugið að listann skal aðeins nota sem viðmið sjá nánar hér. Hér að neðan eru hugmyndir um hvernig vinna megi með orðflokinn.



Orðaforði tengdur formum og mynstrum (< 3 ára)

Smellið hér til að nálgast orðaforða sem er tengdur formum og mynstrum sem gott er að hafi á valdi sínu fyrir 3 ára aldur. Athugið að námsefnið hér að neðan inniheldur ekki öll orðin af orðaforðalistanum. Listinn er einungis notaður sem innblástur til að finna efni við hæfi.



Í dagsins önn


Spjalla um form og mynstur sem þið sjáið í bókum, sjónvarpinu, á fötum og í umhverfinu.

Leyfa barninu að velja ákveðið form sem þið leitið af í umhverfinu þegar þið farið í göngu- eða bílferðir.

Skoða saman bækur með mismunandi formum og mynstri

Finna leikföng með mismunandi formum og mynstrum og spjalla um það á meðan leikið er við barnið.



Námsefni sem gott er að grípa í

Orðaleikur – form. Myndabók með nokkrum mismunandi formum. Gaman er að skoða með barninu hvaða form þið finnið saman í kringum ykkur. Bókin er hluti af þróunarverkefninu Orðaleikur og er á heimasíðu þess.

Form – Verkefnasafnið. Form til útprentunar. „Formin prentuð út í tvíriti, nóg að prenta heiti á eitt blað. Eitt stykki klippt út og límt á harðspjaldapappír, hitt haft í lausu. Franskur rennilás límdur á bæði
spjaldið og lausu formin“. Af síðunni Þarf alltaf að finna upp hjólið? Verkefnasafn. sem er hluti af lokaverkefni Guðlaugar Margrétar Dagbjartsdóttur og Salóme Huldar Gunnarsdóttur til BA gráðu í Þroskaþjálfafræði.

Paxel123 – form. Á vefsíðunni Paxel123.com er leikskólastjórinn Anna Margrét Ólafsdóttir búin að taka saman ýmis verkefni til útprentunar. Með því að smella á hlekkinn hér að ofan getur þú valið á milli fjölda verkefna sem tengjast formum.

Vonandi eigið þið fræðandi og skemmtilega stund saman.

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Change )

Connecting to %s

%d bloggers like this: