Form og mynstur

Form og mynstur er einn orðflokkur úr Orðaforðalista Menntamálastofnunar. Athugið að listann skal aðeins nota sem viðmið sjá nánar hér. Hér að neðan eru hugmyndir um hvernig vinna megi með orðflokinn.

Orðaforði tengdur formum og mynstrum (3 – 6 ára)

Smellið hér til að nálgast orðaforða sem er tengdur formum og mynstrum sem gott er að hafi á valdi sínu fyrir 6 ára aldur. Athugið að námsefnið hér að neðan inniheldur ekki öll orðin af orðaforðalistanum. Listinn er einungis notaður sem innblástur til að finna efni við hæfi.

Í dagsins önn


Spjalla um form og mynstur sem þið sjáið í bókum, sjónvarpinu, á fötum og í umhverfinu.

Leyfa barninu að velja ákveðið form sem þið leitið af í umhverfinu þegar þið farið í göngu- eða bílferðir.

Skoða saman bækur með mismunandi formum og mynstri

Finna leikföng með mismunandi formum og mynstri og spjalla um það á meðan leikið er við barnið.

Námsefni sem gott er að grípa í

Form – myndband. Tæplega tveggja mínútna líflegt myndband með myndum af mismunandi formum. Hringur, þríhyrningur, ferhyrningur, ferningur, fimmhyrningur og sexhyrningur. Ef þið hafið aðgang að blaði og blýani væri gott fyrir barnið að teikna formin en taka þarf tillit til teiknifærni og áhuga þegar valið er hvaða og hversu mörg form börnin teikna. Myndbandið er af síðunni Stærðfræðistofan.

Form veggspjald. Skemmtilegt veggspjald með mynd af 9 mismunandi formum. Veggspjaldið er af síðunni fjölbreytt kennsla fyrir fjöruga krakka.

Orðaleikur – form. Myndabók með nokkrum mismunandi formum. Þegar flett er í gegnum bókina og spjallað um hvaða form eru á myndunum má einnig bæta við fleiri hugtökum af orðaforðalistanum eins og: horn, hlið, kantur o.s.frv. Það er líka skemmtilegt að skoða út frá bókinni hvaða form börnin sjá í umhverfinu sínu. Bókin er hluti af þróunarverkefninu Orðaleikur og er á heimasíðu þess.

Paxel123 – form. Á vefsíðunni Paxel123.com er leikskólastjórinn Anna Margrét Ólafsdóttir búin að taka saman ýmis verkefni til útprentunar. Með því að smella á hlekkinn hér að ofan getur þú valið á milli fjölda verkefna sem tengjast formum.

Paxel123 – form. Á vefsíðunni Paxel123.com er leikskólastjórinn Anna Margrét Ólafsdóttir búin að taka saman ýmis verkefni til útprentunar. Með því að smella á hlekkinn hér að ofan getur þú valið á milli fjölda verkefna sem tengjast mynstri.

Til gagns þá er stutt fræðsla á síðu Miðju máls og læsis um þrjú mismunandi þrep orðaforða sem gott er að hafa í huga við málörvun barna til að bæta við flóknari orðum samhliða grunnorðaforða. Að sjálfsögðu þarf að taka tillit til aldurs, áhuga, viðfangsefni og þroska barnsins.

Vonandi eigið þið fræðandi og skemmtilega stund saman.

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Change )

Connecting to %s

%d bloggers like this: