Tilfinningar

Tilfinningar er einn orðflokkur úr Orðaforðalista Menntamálastofnunar. Athugið að listann skal aðeins nota sem viðmið sjá nánar hér. Hér að neðan eru hugmyndir um hvernig vinna megi með orðflokinn.

Orðaforði tengdur tilfinningum (3 – 6 ára)

Smellið hér til að nálgast orðaforða sem er tengdur tilfinningum sem gott er að hafi á valdi sínu fyrir 6 ára aldur. Athugið að námsefnið hér að neðan inniheldur ekki öll orðin af orðaforðalistanum. Listinn er einungis notaður sem innblástur til að finna efni við hæfi.

Í dagsins önn

Leggja orð á tilfinningar sem barnið upplifir

Tala um tilfinningar persóna í teiknimyndum og bókum


Námsefni sem gott er að grípa í

Tilfinningaspjöld með 12 mismunandi tilfinningum. Skemmtilegt að skoða spjöldin og ræða tilfinningarnar. Enn fleiri hugmyndir um hvernig hægt er að vinna með spjöldin má nálgast hér. Frístundamiðstöðin Tjörnin gaf spjöldin út.

Orðagull – hvernig líður þér? Í borði númer 8 í Orðagull er sérstök áhersla lögð á orðaforða tengdum tilfinningum. Ég mæli með að foreldrar nái í appið Orðagull, sérstaklega fyrir börn sem eru á síðasta ári leikskólagöngunnar.

Til gagns þá er stutt fræðsla á síðu Miðju máls og læsis um þrjú mismunandi þrep orðaforða sem gott er að hafa í huga við málörvun barna til að bæta við flóknari orðum samhliða grunnorðaforða. Að sjálfsögðu þarf að taka tillit til aldurs, áhuga, viðfangsefni og þroska barnsins.

Vonandi eigið þið fræðandi og skemmtilega stund saman.

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Change )

Connecting to %s

%d bloggers like this: