Umhverfi – inni er einn orðflokkanna úr Orðaforðalista Menntamálastofnunar. Athugið að listann skal aðeins nota sem viðmið sjá nánar hér. Hér að neðan eru hugmyndir um hvernig vinna megi með orðflokinn.
Orðaforði tengdur umhverfi – inni (< 3 ára)
Smellið hér til að nálgast orðaforða sem er tengdur umhverfi inni sem gott er að börn yngri en þriggja ára hafi á valdi sínu. Athugið að námsefnið hér að neðan inniheldur ekki öll orðin af orðaforðalistanum. Listinn er einungis notaður sem innblástur til að finna efni við hæfi.
Í dagsins önn
Leggja orð á og spjalla um hluti sem þið notið Leyfa börnunum að aðstoða við eldamennsku, bakstur og að leggja á borð, leggja orð á hlutina og spjalla um til hvers þeir eru notaðir Gefa umhverfi – inni sérstakan gaum við lestur bóka Draga fram leikföng sem tengjast umhverfi inni fram og jafnvel setja það upp á þann hátt að barnið freistist frekar til að leika með það |
Námsefni sem gott er að grípa í
100 orð – heimilisorð. Barnið klikkar á skjáinn og segir hvaða hlut það sér á myndinni sem kemur upp. Skemmtileg viðbót væri að finna hlutinn einnig á heimilinu ef hann er til. Einnig hægt að spjalla um hlutinn til dæmis notagildi, hvar hann sé geymdur og hver á heimilinu notar hann.
Leikur að íslenskum orðum (fyrir tölvur). Fyrir yngri leikskólabörn mæli ég með að smella á músina (aðgerðarmöguleika í leiknum) þegar búið er að velja hús. Þá geta þau smellt á húsgögn, heimilistæki eða áhöld og heyrt hvað það kallast. Hér má einnig finna sömu hluti á sínu heimili, spjalla um notagildi, hvar hann sé geymdur, hver á heimilinu noti hann og svo framvegis.
Vonandi eigið þið fræðandi og skemmtilega stund saman.